21 Nóvember 2002 12:00

Nú hefur lögreglan á Höfn fengið tengingu við lögregluvefinn, Lögreglan.is, og verður hægt að fletta þar upp ýmsum fréttum af starfssemi, og útdráttum úr dagbók lögreglunnar. Allt sem fólk þarf að gera er að velja -Höfn- í þeim dálkum sem eru í boði á vefnum, og fær það þá nýjustu fréttir.

Fagnar lögreglan á Höfn þessu framtaki, sem er á vegum Ríkislögreglustjóra, og verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út í framtíðinni.

Höfn, 21.02.2002