30 Ágúst 2023 17:55

Eftir samráð við sérfræðinga Veðurstofu Íslands, Vegagerðina og almannavarnir hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi tekið ákvörðun um að aflétta öllum vegalokunum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Um er að ræða:

Landmannalaugar inn á Fjallabak-nyrðra inná F-208
Skaftártungnavegur (vegur 208) frá Búlandi
Inn á Álftavatnskrókinn á vegi F-210 inná F-233
Vestan við vað yfir Hólmsár gatnamót F-210 og F-232

Vísbendingar eru um að hlaupið hafi náð hámarki og tekið að draga úr rennsli . Engu að síður má búast við vatnavöxtum, ekki síst í ljósi úrkomuspár á svæðinu næstu daga. Því geta ár og lækir flætt yfir bakka sína og vegir farið undir vatn. Enn er hætta á gasmengun við Skaftá og því er varað við að dvelja nálægt bökkum hennar að óþörfu.