23 Júlí 2007 12:00

Hundurinn Lúkas er kominn heim heill á húfi. Hann hefur verið týndur frá því í maí og hinar furðulegustu sögur gengið um afdrif hans síðan þá.  Hefur lögreglan á Akureyri m.a. verið með til rannsóknar meint dráp á honum sem reyndist tilhæfulaust með öllu. Lúkas hefur haldið til í svonefndu Fálkafelli ofan Akureyrar undanfarið en ómögulegt hefur reynst að ná honum þar sem hann hefur verið afskaplega mannfælinn. Egnt var fyrir hann með æti og kom hann síðan í felligildru þar sem hann var handsamaður í morgun.