14 Maí 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ford F350 Crew 4×4 SRW pallbíl, en honum var stolið úr geymsluhúsnæði í Súðarvogi í Reykjavík. Pallhýsið var ofan á bílnum og var því einnig stolið. Pallbíllinn hafði verið í geymslu undanfarna mánuði og því er ekki vitað með vissi hvenær honum var stolið, en þjófnaðurinn uppgötvaðist í gær. Skráningarnúmer ökutækisins, AT-837, voru lögð inn í vetur, en einnig hafði eigandinn fjarlægt rafgeymirinn úr bílnum. Pallbíllinn var læstur og í parki þegar honum var stolið.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ef einhver sér til pallbílsins í umferðinni er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hringja tafarlaust í 112 svo hægt sé að bregðast við strax.

Þessum bíl var stolið úr geymslu í Súðarvogi.