11 Janúar 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Matthíasi Þórarinssyni, 21 árs, en ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. Talið er líklegt að Matthías, sem er um 180 sm á  hæð og ljósskolhærður, haldi til einhversstaðar á Suðurlandi. Hann hefur til umráða gamlan Rússajeppa og hefur ferðast á honum um landið en bíllinn er útbúinn sem húsbíll. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Matthíasar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Meðfylgjandi eru myndir af Matthíasi og samskonar bíl og hann hefur til umráða.