29 Nóvember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Skoda Octavia með skráningarnúmerið IG-Z24, en bílnum var stolið frá Bílaleigu Hertz á Reykjavíkurflugvelli fyrir nokkru síðan. Þeir sem  geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is