4 Janúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Skoda Octavia með skráningarnúmerið YJ-634 en honum var stolið á Háteigsvegi í Reykjavík síðdegis á nýársdag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Þessum bíl var stolið á Háteigsvegi á nýársdag.