4 Apríl 2012 12:00

Lögreglan á Selfossi lýsir enn eftir bifreiðinni AU-764

Sem er Toyota Yaris árgerð 2007, hvít að lit

Bifreiðinni var stolið úr bílageymslu fjölbýlishúss við Fossveg 4 á Selfossi

einhverntíman á tímabilinu frá 18.feb. ´12 kl.15:00 fram til 20.feb.´12 kl.11:45

En ekkert hefur spurst til bifreiðarinnar síðan þá, og er það ósk lögreglunnar á Selfossi

að almenningur liðsinni lögreglu við leitina að bifreiðinni og svipist um eftir bifreiðinni í sínu næsta nágrenni,

en bifreiðina gæti verið að finna hvar sem er á landinu.

Eigandi bifreiðarinnar er eldri kona og er afnotamissir hennar af bifreiðinni henni afar þungbær.

Til glöggvunar fylgir mynd af sambærilegri bifreið og um ræðir.

Þeim sem kunna að verða varir við bifreiðina er vinsamlegast bent

á að hafa samband við Lögregluna á Selfossi í síma 480 1010