27 Apríl 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að bifhjóli sem stolið var frá fjölbýlishúsi í Garðhúsum í Grafarvogi en tilkynnt var um þjófnaðinn um miðjan mánuðinn. Um er að ræða Suzuki DR-Z400S, blátt að lit, árgerð 2005, skráningarnúmer RH-570 en samskonar bifhjól má sjá á meðfylgjandi mynd. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.