7 Ágúst 2008 12:00

Lögrelgan í  Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum að líkamsáras sem átti sér stað í Herjólfsdal um það leiti sem Brekkusöngnum var að ljúka.  Samkvæmt frásögn þess er fyrir árásinni varð, var hann að ganga niður brekkuna á milli stóra sviðsins og veitingatjaldsins þegar hann var slegin í andlitið með flösku.  Sá er fyrir árásinni varð var klæddur í gyltar leggingsbuxur, svarta hermannaklossa, bleikt ballerínupils, bleikan bol og með bleika loðhúfu á höfði.  Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 481 1665.