19 Desember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir steingráum Volkswagen Polo (árgerð 2012) með skráningarnúmerið DF-F11, en bílnum var stolið í Hvassaleiti í Reykjavík í lok nóvember. Nú hefur komið fram að bílnum var ekið við Fiskilæk í Borgarfirði laugardaginn 8. desember kl. 18.49. Mynd náðist af bílnum í hraðamyndavél, sem þarna er, og er hún birt hér að neðan. Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn á myndinni, eða vita hvar bíllinn er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 

Mynd úr hraðamyndavél við Fiskilæk í Borgarfirði.

Samskonar bíll og leitað er að.