28 Júní 2013 12:00

Maðurinn sem lögreglan á Selfossi handtók snemma í gærmorgun grunaðan um innbrot í bíla á Selfossi var í gærkvöldi leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands sem úrskurðaði manninn til að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar sem hann hafði hlotið með dómum Hæstaréttar.  Fangelsismálastofnun hefur tekið við manninum sem hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.