16 Mars 2012 12:00

Lögreglan á Selfossi handtók í dag mann á Eyrarbakka sem hafði nokkru áður hringt í Neyðarlínuna og gaf í skyn að hann væri vopnaður og með mann í gíslingu.  Jafnframt hafði hann í hótunum að ráðast gegn lögreglu ef hún freistaði þess að ná til hans.  Leitað var aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra sem kom á Eyrarbakka.  Lögregla yfirbugaði manninn og færði í lögreglustöð.  Maðurinn var óvopnaður við handtöku og veitti ekki mótþróa.  Ekki er vitað hvað manninum gekk til en  læknir mun verða fenginn til að  leggja mat á ástand hans.  Maðurinn er búsettur á höfuðborgarsvæðinu.  Vegna rannsóknarhagsmuna verður ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið.