12 Febrúar 2017 18:59

Kl. 13:16 í dag var björgunarlið og lögregla kallað að Silfru í Þingvallaþjóðgarði vegna meðvitundarlauss manns.   Um var að ræða erlendan ferðamann sem var í 8 manna hópi undir leiðsögn leiðsögumanna við snorkl í vatninu.   Við komu að bakkanum, að afloknu sundinu, missti hann meðvitund og var strax komið upp á bakkann þar sem leiðsögumenn hófu endurlífgun en hópurinn var með búnað til súrefnisgjafar og hjartastuðtæki með sér eins og skylt er fyrir þá sem fara með hópa í gjánna.  Endurlífgun var haldið áfram þar til komið var með sjúklinginn með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík en þar var hann úrskurðaður látinn.   Dánarorsök liggur ekki fyrir.

Viðbragðsaðilum, leiðsögumönnum og samferðamönnum mannsins var boðið upp á viðrunarfundi eftir atvikið af hálfu Rauðakross Íslands og áfallateymis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.