8 Febrúar 2011 12:00

Eins og fram kom í fréttum lögreglu í dag var ráðist á dreng í Hveragerði í gær.  Maðurinn sem í hlut átti gaf sig sjálfur fram fljótlega eftir að lýst var eftir upplýsingum um málið í fjölmiðlum.  Hann mætti til skýrslutöku hjá lögreglu á Selfossi og skýrði mál sitt.  Maðurinn, sem býr á höfuðborgarsvæðinu, hafði gert sér ferð í Hveragerði til að skokka þar um götur sér til heilsubótar.