6 September 2011 12:00

Lögreglumenn á eftirliti í Héðinsfjarðargöngum mældu í gærkvöldi bifreið á yfir 160 km/klst hraða en bifreiðin var að aka frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Hámarkshraði í Héðinsfjarðargöngunum er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar af bifreiðinni en haft var upp á ökumanninum seinna um kvöldið.  Ökumaðurinn sem er 18 ára viðurkenndi brotið við yfirheyrslur hjá lögreglu og bar því við að hafa verið í kappakstri við aðra bifreið skömmu áður en mælingin fór fram.  Á leið sinni um göngin fór ökumaður framhjá tveimur hraðamyndavélum í göngunum. Þetta er í þriðja skiptið á innan við mánuði sem viðkomandi ökumaður er tekinn fyrir of hraðan akstur og í öllum tilvikum var hann að aka langt yfir löglegum hámarkshraða á viðkomandi vegi.