10 Ágúst 2022 10:29

Maðurinn sem leitað var að í gærkvöldi fannst látinn.  Maðurinn hafði verið ásamt öðrum við sjósund út frá Langasandi á Akranesi en skilaði sér ekki og því var hafin leit. Um 50 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt lögreglu og þyrlu Landhelgisgæslunnar.