13 Nóvember 2004 12:00

Laugardagurinn 13. nóvember 2004.

Fréttatilkynning frá lögreglunni í Keflavík

Kl. 04:13 í nótt var lögreglunni í Keflavík tilkynnt að danskur hermaður væri slasaður á veitingastað í Keflavík.  Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann lést skömmu síðar.  Vitni segja að hann hafi verið sleginn af einum gesta staðarins.   Lögreglan handtók þann grunaða og er hann í haldi lögreglunnar.  Rannsókn málsins er á frumstigi.

Nánari upplýsingar um atburðinn gefnar 13. nóvember 2004 kl. 10:20.

Sá látni er 33 ára gamall danskur hermaður sem mun hafa komið til landsins í gærkvöldi með herflugvél danska hersins og gist ásamt félögum í flugáhöfninni á hóteli í Keflavík. Í gærkvöldi mun hann hafa farið með félögum sínum út að skemmta sér í miðbæ Keflavíkur.  Atburðurinn átti sér stað á veitingastaðnum Traffic, Hafnargötu 30, Keflavík.

Að sögn vitna gerðist atburðurinn framan við bar veitingastaðarins. Hinn grunaði mun hafa slegið hinn látna einu höggi á höfuðið og farið síðan rakleitt út af veitingastaðnum. Hann er 29 ára gamall breskur ríkisborgari sem er búsettur hér á landi og var hann handtekinn á heimili sínu skömmu síðar. Virtist hann þá talsvert mikið ölvaður.

Þegar lögregla kom á staðinn var búið að færa hinn látna inn í starfsmannaðstöðu skemmtistaðarins þar sem sjúkraflutningamenn voru að gera á manninum endurlífgunartilraunir. Ekkert blóð var sjáanlegt á vettvangi eða á hinum látna, en nákvæm rannsókn á vettvangi hefur ekki farið fram. Málið er sem sagt á frumrannsóknarstigi og ekki hægt að gefa nánari upplýsingar um atburðinn fyrr en eftir helgina.

Nánari upplýsingar 13. nóvember kl. 17:05

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði hinn grunaða, sem er með skoskur, í gæsluvarðhald til kl. 16:00 mánudaginn 15. nóvember n.k og í farbann til 13. mars 2005.

Nánari upplýsingar 14. nóvember kl. 14:45

Skýrslutökum lögreglu af sakborningi og vitnum er lokið, málið telst upplýst. Sakborningur var látinn laus kl. 14:30 í dag.

Nafn hins látna er Flemming Tolstrup, hann var fæddur 1971.

Nánari upplýsingar 16. nóvember 2004 kl. 12:45

Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líki Flemming Tolstrup sem lést í Keflavík s.l. laugardag er sú að hann hafi látist af völdum heilablæðingar.  Blæðing þessi er afleiðing hnefahöggs er hlaut efst á háls við hægra kjálkabarð.