28 Desember 2012 12:00

Við yfirheyrslu yfir Matthíasi Mána á Litla Hrauni í gær upplýsti hann um leiðir sínar eftir strokið frá Litla Hrauni.  Matthías hefur ekki viljað segja frá hvernig hann komst út af fangelsislóðinni.  Allt bendir til að hann hafi farið yfir girðingarnar tvær.  Eftir að hann var kominn út hélt hann til austurs ofan við Stokkseyri með stefnu að Neistastöðum í Flóa þar sem hann komst inn í sumarbústað.   Í skemmu þar hjá var fjórhjól sem Matthías Máni tók.  Á fjórhjólinu hélt hann upp Skeiðaveg inn Skálholtsveg yfir á Biskupstungnabraut hana til norðurs að Torfastöðum.  Þar ók hann inn  á Reykjaveg og hélt að Laugarvatni.  Matthías Máni sneri þar við og ók til baka að Geysi, áfram að Einholtsvegi, sem er mitt á milli Geysis og Gullfoss.  Þann veg ók hann um Brúarhlöð og áfram í átt að Flúðum.  Skammt ofan við bæinn Skipholt kláraðist bensínið af fjórhjólinu.  Hann hélt áfram fótgangandi inn á Hrunaveg inn í Reykjadal og braust inn í sumarbústað sem hann dvaldi í næstu þrjá sólarhringa.  Eftir dvöl í bústaðnum hélt Matthías Máni fótgangandi niður með Hruna og eftir þjóðveginum að Þjórsárdalsvegi.  Eftir þeim vegi gekk hann að sumarbústað í landi Stóra Hofs sem hann braust inn í og hélt til í næstu þrjá sólarhringa.  Í þeim bústað fann hann meðal annars riffilinn sem hann tók með sér að Ásólfsstöðum. 

Ástæða þess að hann tók riffilinn var sú að hann hugðist veiða sér til matar ef á þyrfti að halda.  Matthías hafði ráðgert að ganga upp fyrir Búrfellsvirkjun og fara þar yfir Þjórsá yfir í Rangárþing. 

Matthías Máni átti kost á að fylgjast með fréttum í bústöðunum sem hann dvaldi í.  Lögregla hafði hvatt hann til að gefa sig fram svo ættingar hans gætu haldið gleðileg jól.  Þessi ástæða og hin að Matthías Máni var ókunnugur í Rangárþingi varð til þess að hann ákvað að gefa sig fram á Ásólfsstöðum. 

Matthías Máni lét mjög lítið fyrir sér fara á flóttanum og mun ekki hafa talað við nokkurn mann í heila viku.  Hann byrgði fyrir alla glugga í þeim bústöðum sem hann dvaldi í.  Svo fór hann að líkt og Hjalti Magnússon í sögunni “Önnu á Stóruborg” þar sem hann var í felum í Paradísarhelli að hann gat fylgst með öllu kviku. Nokkrir vissu um fylgsni Hjalta en enginn um hvar Matthías Máni hélt sig.  

Lögregla hefur sannreynt að frásögn Matthíasar Mána er rétt og málið upplýst.  

Eins og fram hefur komið lagði lögreglan mestan þunga í leit á svæðum í uppsveitum Árnessýslu svo sem á og við Laugarvatn, Flúðir og víðar þar í grennd.  Vissulega var öllum möguleikum haldið opnum í samræmi við upplýsingar sem bárust frá almenningi.  Það gefur að skilja að leit af þessu tagi byggist á samstarfi og samvinnu lögreglu, fangelsismálayfirvalda, Landhelgisgæslu, björgunarsveita og borgaranna.