21 Janúar 2013 12:00

MDMA – fíkniefni, kannabisefni, sterar, sprautur og lyf fundust við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Farið var í húsleitina á föstudagskvöld, að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Efnin fundust víðs vegar í íbúðinni. Að auki fannst óopnaður 25 lítra Tuborg Grön bjórkútur. Grunur leikur á að um þýfi sé að ræða og haldlagði lögregla kútinn því ásamt efnunum. Málið er í rannsókn.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Ölvaður og réttindalaus ók á steypta girðingu

Ölvaður og réttindalaus ökuþór ók á steypta girðingu í Sandgerði í nótt og hvarf síðan á brott án þess að gera vart við sig. Lögreglan á Suðurnesjum hafði fljótlega upp á bifreiðinni, þar sem hún var enn á sveimi í Sandgerði. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu að hann hefði neytt áfengis. Hann var ekki sáttur við afskipti lögreglu. Nokkurt tjón varð af ákeyrslunni. Lögregla rannsakar málið.