1 Júní 2012 12:00

Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Maðurinn sem er erlendur var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá London. Við hefðbundið eftirlit tollgæslu kom upp rökstuddur grunur um að hann hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Svo reyndist vera, því efnin hafði hann falið innvortis. Lögreglan á Suðurnesjum handtók hann og flutti á lögreglustöð. Hann var síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er á lokastigi.

„Missti“  fíkniefni úr leggöngum

Tæplega þrítug kona situr í gæsluvarðhaldi eftir að hún reyndi að smygla nær hálfu kílói af fíkniefnum í leggöngum sínum til landsins. Konan, sem er af erlendu bergi brotin,  var að koma frá Kaupmannahöfn og vaknaði grunur um að hún væri með fíkniefni í fórum sínum við hefðbundið eftirlit tollgæslu. Þegar farið var að ræða nánar við hana „missti“ hún á fimmta hundrað grömm af extacy-dufti niður úr leggöngum sínum. Lögreglan á Suðurnesjum var þá kvödd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem konan hafði „misst“ efnin og var hún handtekin og  færð á lögreglustöð. Hún var skömmu síðar úrskurðuð í gæsluvarðhald. Rannsókn lögreglu er á lokastigi.