11 Janúar 2013 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í fyrrakvöld afskipti af ökumanni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn, sem er rúmlega tvítugur, neitaði að fara á lögreglustöð til sýnatöku. Hann var þá handtekinn og færður á stöð. Í ljós kom að kannabisefni lágu á gólfi fyrir aftan farþegasæti bifreiðarinnar sem hann ók. Sýnatökur staðfestu neyslu hans á kannabis.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.