19 Nóvember 2013 12:00

Um klukkan níu í gærkvöldi var hringt í lögregluna á Selfossi vegna þjófavarnakerfis sem hafði farið í gang í sumarbústað í Reykjaskógi í Bláskógabyggð.  Lögreglumenn fóru þegar áleiðis á vettvang.  Á leið sinni á staðinn höfðu lögreglumenn símasamband við mann sem fór að Reykjaskógi til að huga að innbrotsþjófum.  Í símanum heyrðist  að mikið gekk á, hróp og öskur á erlendri tungu.  Maðurinn hafði hitt tvo útlenda menn við símahlið á veginum inn í Reykjaskóg.  Hann bað þá að bíða þar til lögregla kæmi á staðinn.  Skipti engum togum að mennirnir réðust á hinn með þeim afleiðingum að hann hlaut mikinn skurð í andlitið og grunur um rifbeinsbrot.  Árásarþolinn náði niður skráninganúmeri bílsins sem árásarmennirnir voru á og tegund.  Lögreglumenn fundu bifrieiðina í akstri við Úthlíð og þar var akstur hennar stöðvaður.  Í bifreiðinni voru tveir karlmenn frá Lettlandi.  Annar þeirra hefur tvívegis verið staðinn að gripdeild í verslunum í Árnessýslu.  Annars vegar í ferðamannaverslunum á Geysi og Gullfossi og hins vegar í Hagkaup og Tölvulistanum á Selfossi.  Mennirnir voru handteknir og verða yfirheyrðir um meinta líkamsárás og innbrot í sumarbústaðinn.  Verið er að skoða hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum. 

Þegar ljósi alvarleika málsins var þegar á frumstigi leitað eftir aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra og lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.