19 Ágúst 2010 12:00

Tveir stórviðburðir verða í höfuðborginni laugardaginn 21. ágúst, Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt. Búast má við miklum mannfjölda í miðbæ Reykjavíkur af þessu tilefni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun kappkosta að liðsinna gestum borgarinnar og greiða götu þeirra eftir föngum. Viðbragðsaðilar munu vera með aðstöðu í Ingólfsstræti/Sölvhólsgötu við húsakynni menntamálaráðuneytisins og hægt er að leita þangað ef aðstoðar er þörf. Þar verður einnig athvarf fyrir týnd börn.

Vegna lokunar miðborgarinnar kunna einhverjar umferðartafir að verða og eru vegfarendur beðnir um að sýna þolinmæði og skilning. Lokanir gatna á Menningarnótt má sjá hér.

Þeir sem koma akandi eru beðnir um að haga akstri þannig að ekki leiði til tafa eða óþæginda fyrir aðra umferð. Ökumenn sem leggja ökutækjum sínum ólöglega geta búist við stöðubrotsgjaldi eða að ökutækin verði fjarlægð.   

Athygli er vakin á því að umferðarljós á Sæbraut, Hringbraut, Miklubraut og Bústaðavegi verða tímabundið tekin úr sambandi þegar formlegri dagskrá Menningarnætur lýkur um klukkan 23.30. Umferð mun á meðan stjórnað af lögreglu þar sem þess verður þörf. Þá verður vinstri beygja af Bústaðavegi ( í vesturátt) inn á Kringlumýrarbraut til suðurs bönnuð tímabundið en það er gert til að liðka fyrir umferð um Bústaðaveg frá miðborginni. Ökumönnum er bent á aka Litluhlíð, Hamrahlíð og út á Kringlumýrarbraut.

Vegfarendum er að öðru leyti bent á að kynna sér upplýsingar um viðbúnað borgaryfirvalda á vef Menningarnætur, www.menningarnott.is,  eða í dagblöðum. Símaver Reykjavíkurborgar er opið á Menningarnótt frá kl. 13-17:00 og veitir upplýsingar í síma 4 11 11 11.