11 Október 2006 12:00

Búist er við mikilli umferð vegna landsleiks Íslendinga og Svía á Laugardalsvelli í kvöld, miðvikudaginn 11. október, klukkan 18:05. Lögreglan í Reykjavík beinir því til knattspyrnuáhugamanna að þeir leggi tímanlega af stað og sýni þolinmæði. Ekki síst eftir leikinn en þá verður umferðin væntanlega enn þyngri.

Lögreglumenn verða á helstu gatnamótum í nágrenni vallarins og stýra umferðinni eftir því sem þörf krefur. Ljóst er að ekki geta allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Þrátt fyrir leiðinlegt veðurútlit ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum.

Rétt er að taka fram að neysla áfengis og tóbaks er stranglega bönnuð á viðburðum Knattspyrnusambands Íslands. Að síðustu vill lögreglan geta þess að hún vonast eftir hagstæðum úrslitum í kvöld. Áfram Ísland!