25 September 2007 12:00

Í dag, 25. september 2007, var lögreglunni á Vestfjörðum fært að gjöf hjartastuðtæki af gerðinni  Samaritan PAD.  Tækið færði Helga Guðbjartsdóttir lögreglustjóranum, Kristínu Völundardóttur, en það er gefið lögreglunni til minningar um eiginmann Helgu, Hjört Jónsson bakarameistara frá Flateyri.  Hjörtur lést þann 8. júní sl.  Oft er talað um að hinn og þessi séu „góðkunningjar lögreglunnar“ og þá í neikvæðri merkingu þess orðs.  Hjörtur Jónsson var góðkunningi lögreglunnar á Vestfjörðum í orðsins fyllstu merkingu.  Hann kíkti oft í kaffi á lögreglustöðina á Ísafirði og létti lögreglumönnum sannarlega lífið í daglegu amstri þeirra.  Hjartar er sárt saknað af lögreglumönnum. 

Í samræmi við óskir Helgu Guðbjartsdóttur mun hjartastuðtækið verða í útkallsbifreið lögreglunnar, á Ísafirði. 

Meðfylgjandi mynd var tekin af Helgu Guðbjartsdóttur og Kristínu Völundardóttur, lögreglustjóra á Vestfjörðum, við afhendingu gjafarinnar.