18 September 2015 11:09

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði hátt í fimm hundruð bifreiðar í sérstöku umferðareftirliti í vikunni. Rætt var við ökumenn og kannað  með ástand þeirra og réttindi. Fór eftirlitið fram á Reykjanesbraut við Vogaafleggjara og við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Er skemmst frá því að segja að allir ökumennirnir voru með sín mál í topplagi. Ein bifreiðin var að vísu „eineygð“ en ökumaðurinn ætlaði að halda á næstu bensínstöð og láta kippa því í liðinn.

Undantekningarlaust voru ökumenn jákvæðir og brugðust vel við þessu átaki lögreglu.