29 Desember 2012 12:00

Maðurinn sem lést í köfunarslysi í Silfru í gær hét Björn Kolbeinsson og var fæddur 25. júlí 1977.  Björn var ókvæntur og barnlaus.  Hann starfaði sem sérfræðingur hjá EFTA með aðsetur í Genf en dvaldi nú hér í jólafríi hjá foreldrum sínum og systkinum.