20 Nóvember 2008 12:00

Íbúar í götum sem liggja að Seljuási og Hlíðarási í Ásahverfi í Garðabæ mættu á fund sem haldinn var í gærkvöld um nágrannavörslu í hverfinu.  Nágrannavarslan er samstarfsverkefni  Garðabæjar og svæðisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í Garðabæ.  Nágrannavarslan felst m.a í því að íbúar taka höndum saman um að vernda heimili sín og nánasta umhverfi fyrir óboðnum gestum. Góð mæting var á fundinn og íbúar áhugasamir um verkefnið.  Þetta er annað hverfið í bænum sem tekur upp virka nágrannavörslu.  Ætlunin er að útvíkka verkefnið til fleiri hverfa í Garðabæ og er næsti fundur fyrirhugaður fyrstu vikuna í desember.