12 Maí 2014 12:00

Þann 9. maí s.l. lauk námi á fyrri bóknámsönn grunnnáms Lögregluskóla ríkisins en það hófst þann 14. janúar s.l. 16 nemendur voru við nám á önninni og þeir luku allir prófum með fullnægjandi árangri.

Bestum námsárangri á prófum annarinnar, 8,96 í meðaleinkunn, náðu þær Björk Jónsdóttir og Erna Dís Gunnarsdóttir, þar á eftir var Kristinn Sævar Magnússon með meðaleinkunnina 8,88. Skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Arnar Guðmundsson, veitti þessum nemendum sérstaka viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Meðaleinkunn alls hópsins var 8,22 sem er afburða góður árangur.

Að lokinni önninni hófst fjögurra mánaða starfsnám nemendanna en markmiðið með því er að nemendurnir fái, undir leiðsögn en einnig með eigin metnaði og frumkvæði, tækifæri til að auka við þá kunnáttu sem þeir fengu á fyrri bóknámsönn. Að loknu starfsnámi skulu nemendur hafa öðlast þekkingu, jákvætt viðhorf og sjálfstraust til að takast á við námið á seinni bóknámsönn sem hefst í byrjun september 2014.

Á starfsnámsönninni greiðir Lögregluskóli ríkisins mánaðarlaun nemendanna og tilteknum lögreglustjórum, hjá fjórum lögregluembættum að þessu sinni, er falið að annast starfsnámið. Nemendur verða stærstan hluta tímabilsins í almennri deild en fá einnig kynningu á öðrum deildum viðkomandi embættis í samræmi við námsskrá annarinnar.

Af hálfu skólans er lögð á það þung áhersla að nemendurnir séu í starfsnámi en ekki í afleysingum. Þeir hafa starfsstigið lögreglunemi og teljast ekki til lögreglumanna, þótt þeir fari með lögregluvald þegar þeir gegna lögreglustarfi.

Nemendur tilbúnir að hefja starfsnám

Nemendur tilbúnir að hefja starfsnám