23 September 2007 12:00

Að morgni laugardagsins 22. september sl. kærði kona á fertugsaldri nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Við rannsókn málsins bárust böndin að erlendum ríkisborgara og var hann handtekinn að kvöldi sama dags af lögreglunni á Selfossi, að beiðni lögreglunnar í Vestmannaeyjum, en maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag.  Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er nú í haldi lögreglunnar á Selfossi og verður ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds tekin síðar í dag.