25 Mars 2009 12:00

Til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum er kæra vegna meintrar nauðgunar sem

sögð er að átt hafi sér stað aðfaranótt 22. mars sl. Málsatvik liggja ekki ljós fyrir en skýrsla

hefur verið tekin af meintum þolanda, sem er kona um fertugt, og meintum geranda, sem er

karlmaður um þrítugt.  Lögreglan í Vestmannaeyjum nýtur aðstoðar rannsóknardeildar

lögreglunnar á Selfossi við rannsókn málsins.