4 Ágúst 2007 12:00

Í Neskaupstað fer nú fram hið hefðbundna Neistaflug.  Tveir dansleikir voru í bænum í nótt, og fóru þeir að mestu vel fram.  Nokkur erill hefur verið hjá lögreglu í tengslum við ölvun hátíðargesta.  Talsvert magn af áfengi var haldlagt hjá unglingum á svæðinu.

17 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur, sá sem hraðast fór ók á 123 km.  Einn tekin fyrir ölvun við akstur.

Segja má að þessi fyrsta nótt Neistaflugs hafi farið vel fram.

Lögreglan treystir sér ekki til að meta fjölda hátíðargesta að svo stöddu.