6 Ágúst 2007 12:00

Þessi síðasta nótt Neistaflugs var talsvert erilsöm hjá lögreglu. Talsvert var um pústra og slagsmál.  Einn maður situr í fangageymslu vegna húsbrots.  Undir morgun var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur.

Í umferðareftirliti í tengslum við Neistaflugið í gær voru 25 aðilar kærðir fyrir of hraðan akstur.

Samtals hafa því 72  ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Eskifirði það sem af er helginni og þar af 22 við Höfn.

Engin umferðarslys hafa orðið í umdæminu það sem af er, en lögreglan vill beina því til ökumanna að aka varlega og gefa sér tíma til að komast á milli staða, og muna að aka ekki af stað fyrr en runnið er af mönnum.  Lögreglan verður á ferðinni og kannar ástand þeirra sem hygjast aka af stað.