2 Febrúar 2006 12:00

Lögreglumenn á Hvolsvelli hafa tekið á móti ungum og áhugasömum nemendum Hvolsskóla á Hvolsvelli í starfskynningu undanfarið misseri. Þetta verkefni hefur staðið frá s.l. hausti og er heimsókn þeirra til lögreglunnar ein af mörgum heimsóknum til fyrirtækja hér héraði. Myndin hér að ofan er tekin fimmtudaginn 2. febrúar s.l. og sýnir síðasta hópinn sem kom á þessu misseri. Hægt er að skoða heimasíðu Hvolsskóla með því að smella hér.