6 Ágúst 2013 12:00

Mennirnir tveir sem létust í flugslysinu við Akureyri í gærdag hétu: Páll Steindór Steindórsson, flugstjóri, til heimilis að Pílutúni 2 á Akureyri. Páll var 46 ára og lætur eftir sig sambýliskonu og tvær dætur. Pétur Róbert Tryggason, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, til heimilis að Rútsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit. Pétur var 35 ára gamall, ókvæntur og lætur eftir sig tvö börn.