7 Ágúst 2013 12:00

Stúlkurnar sem létust í bílslysi á Suðurlandsvegi skammt austan við Meðallandsveg sunnudaginn 4. ágúst s.l. hétu:

Natalia Gabinska fædd 6. mars 1998 í Póllandi, búsett í Póllandi en var hér í heimsókn hjá móður sinni sem einnig var farþegi í bifreiðinni. 

Magdalena Hyz fædd 9. maí 1997. Magdalena var búsett í Póllandi en var í heimsókn hér á landi og dvaldi hjá frændfólki sínu.  Stúlkurnar tvær tengdust vinaböndum.