1 Nóvember 2018 18:31

 Kona sem lést í bruna á Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær hét Kristrún Sæbjörnsdóttir fd. 1. október 1971, búsett í Reykjavík.  Hún lætur eftir  sig þrjá syni.  Kristrún var gestkomandi í húsinu.   Karlmaður sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson fd. 29 nóvember 1969 búsettur á Selfossi, ókvæntur og barnlaus.   Hann var einnig gestkomandi í húsinu.

Aðstandendur færa viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.