20 Maí 2013 12:00

Hjónin sem létust í hjólhýsi sínu í Þjórsárdal þann 19. maí s.l. hétu  Edda Sigurjónsdóttir, fædd 15.07.1945 og Alexander G Þórsson, fæddur 13.03.1941 til heimilis að Lækjasmára 2 í Kópavogi.   Þau láta eftir sig 3 uppkomin börn og 8 barnabörn. 

Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins vinna að rannsókn málsins.  Sérstaklega er verið að skoða miðstöðvarbúnað hússins og loftræstingu.