16 Desember 2009 12:00

Út er komin bókin Norræn sakamál 2008-2009 en það er Íþróttasamband lögreglumanna á Norðurlöndum sem gefur hana út. Þetta er áttunda bókin í ritröðinni en sú fyrsta kom út árið 2001. Að þessu sinni eru átján sakamál til umfjöllunar, þar af átta íslensk. „Norræn sakamál svipta hulunni af þekktum glæpamálum á raunsæjan og áhugaverðan hátt. Frásagnir lögreglumanna eru spennandi og trúverðugar þó að mörg málanna séu lyginni líkust,” segir m.a í kynningu frá útgefanda en þess má geta að til stendur að framleiða röð sjónvarpsþátta sem verða unnir upp úr bókunum. Norræn sakamál 2008-2009 fæst í bókaverslunum um land allt og einnig í afgreiðslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að Hverfisgötu 115 í Reykjavík. Afgreiðslan er opin alla virka daga frá kl. 8-16. Það var Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, sem fékk fyrsta eintakið af nýju bókinni en myndin hér að neðan var tekin við það tækifæri. Við hlið ráðherrans er Guðmundur St.  Sigmundsson, varaformaður Íþróttasambands lögreglumanna.