23 Ágúst 2007 12:00

Lögregluskóli ríkisins er í stöðugu og nánu samstarfi við aðrar lögreglumenntastofnanir á Norðurlöndum. Eitt samstarfsverkefnanna kallast NordCop en það hefur tvö meginmarkmið, annars vegar að mynda starfshópa með kennurum frá öllum skólunum á tilteknum sviðum lögreglumenntunar og hins vegar að stuðla að nemendaskiptum innan skólanna þannig að nemandi í almennu lögreglunámi geti tekið hluta náms síns í öðru landi.

Í ár er annað árið sem nemendaskiptin fara fram en þau eru með þeim hætti að hingað koma, í mánuð í senn, nemendur frá hinum Norðurlöndunum, allajafna einn frá hverju landi. Enn sem komið er hafa íslenskir lögreglunemar ekki farið til hinna Norðurlandanna í þessum tilgangi en væntanlega verður það fyrr en varir.

Ekki er um það að ræða að norrænum nemendum gagnist, tungumálsins vegna, að sitja löngum stundum í bóklegum kennslustundum í grunnnámi Lögregluskóla ríkisins og því hafa þeir að stórum hluta verið í einskonar starfsþjálfun í lögreglunni.

Um þessar mundir eru staddir hér þrír norrænir lögreglunemar, Ragnhild Ouren frá Noregi, Erika Malmberg frá Svíþjóð og Ulla Sørensen frá Danmörku.

Á myndinni eru, frá vinstri til hægri, Ragnhild, Erika og Ulla. Viðbúið er að þeim megi sjá bregða fyrir næsta mánuðinn í fylgd íslenskra lögreglumanna, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.