31 Janúar 2019 16:05

Samkvæmt nýjum lögum um lögheimili og aðsetur (lög nr. 80/2018), sem tóku gildi þann 1. janúar sl., geta einstaklingar sem flytja hingað til lands mætt á skrifstofu næsta lögregluembættis og tilkynnt um flutninginn.
Skrifstofa lögreglustjórans á Austurlandi, Strandgötu 52, Eskifirði er opin virka daga frá kl. 09:00 – 15:00. Þá er hægt að fá afgreiðslu á öllum lögregluvarðstofum í umdæminu eftir nánara samkomulagi í síma 444 0600.