15 Apríl 2013 12:00

Ný lögreglustöð hefur verið opnuð á Vínlandsleið 2-4 í Grafarholti í Reykjavík en þaðan er sinnt verkefnum í Grafarholti, Grafarvogi, Árbæ, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Á lögreglustöðinni eru bæði almennt svið (sólarhringsvaktir-útköll) og rannsóknarsvið. Helstu stjórnendur eru Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Valgarður Valgarðsson aðalvarðstjóri og Einar Ásbjörnsson lögreglufulltrúi. Árni er jafnframt stöðvarstjóri. Netföng þeirra eru: arni.sigmundsson@lrh.is  valgardurv@lrh.is  einar.asbjornsson@lrh.is  Vegna þessara breytinga hefur lögreglustöðinni á Krókhálsi jafnframt verið lokað.

Minnt er á að almennum fyrirspurnum og upplýsingum til lögreglu á þessu svæði er hægt að koma á framfæri í síma 444-1180 á skrifstofutíma. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu ber hinsvegar ávallt að hringja í 112.

Valgarður, Árni Þór og Einar við nýju lögreglustöðina í Grafarholti.