18 Febrúar 2009 12:00

Bílamiðstöð ríkislögreglustjórans stefnir að því að viðhalda endurnýjun og uppbyggingu á ökutækjum lögreglunnar eins og verið hefur á undanförnum árum. Í janúar sl. hófst standsetning á öflugri jeppabifreið sem tekin verður í notkun hjá lögreglustjóranum á Húsavík á næstu dögum. Þetta er Nissan Patrol, sjálfskiptur, disel turbo, með öflugum staðalbúnaði og fullkomnum sérbúnaði fyrir lögregluna.

Umdæmi lögreglunnar á Húsavík er víðfemt og mun bíllinn koma að góðum notum við margvísleg verkefni sem lögreglumenn sinna í umdæminu.