5 Ágúst 2010 12:00

Í dag fer nýr lögreglubíll í umferð hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Tegundin er Hyundai Santa Fe. Í bílnum er hefðbundinn og fullkominn búnaður til umferðareftirlits, svo sem radar, mynd- og hljóðupptökutæki, Tetra ferilvöktunar- og staðsetningartæki ásamt öðrum búnaði lögreglunnar. Bílamiðstöð ríkislögreglustjóra vonar að bíllinn reynist vel við þær aðstæður sem lögreglumenn í umdæminu starfa.