6 Ágúst 2019 09:54

Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá  lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn við embætti lögreglustjórans á Austurlandi.  Kristján var valinn úr hópi sex umsækjenda um stöðuna.

Fráfarandi yfirlögregluþjónn er Jónas Wilhelmsson Jenssen, sem gegnt hefur stöðu yfirlögregluþjóns frá 1. júlí 2000. Hann lætur af störfum fyrir aldurs sakir.