9 Desember 2014 12:00

Nú hefur verið birt reglugerð um lögregluumdæmi lögreglustjóra en sú breyting verður um áramótin að umdæmum lögreglustjóra fækkar og þau stækka jafnframt því sem skilið verður á milli sýslumanna og lögreglustjóra þar sem sýslumaður hefur jafnframt verið lögreglustjóri. Um áramótin verður til nýtt umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Lögreglustjóri verður Halla Bergþóra Björnsdóttir sem nú er settur sýslumaður á Akranesi.

Skv. 5. gr. reglugerðarinnar verður umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sem hér segir: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð. 

Aðalstöð og aðsetur lögreglustjórans verður á Akureyri í húsnæði lögreglustöðvarinnar við Þórunnarstræti. Þá verða aðrar starfsstöðvar lögreglunnar þar sem verið hefur á Húsvík, Siglufirði, Dalvík og Þórshöfn. Undirbúningur að stofnun hins nýja embættis er vel á veg kominn og ætti allt að verða tilbúið um áramótin. Minniháttar lagfæringar þurfti að gera á lögreglustöðinni á Akureyri vegna hinnar nýju starfsemi en þangað flytjast auk lögreglustjórans fjórir starfsmenn sem áður störfuðu á sýsluskrifstofunni. Ekki verða breytingar á öðrum starfsstöðvum. Öll þjónusta mun verða áfram eins og verið hefur en vonandi verður hægt að bæta hana þegar frá líður.