7 Janúar 2011 12:00

Eins og fólki er ljóst hefur norðanáhlaup  geysað á Norðurlandi í dag og hefur lögreglan á Akureyri í samstarfi við Björgunarsveitina Súlur haft í nægu að snúast.   Verkefni byrjuðu að detta inná borð lögreglu uppúr miðnætti sl. nótt og urðu þau þó nokkur yfir nóttina en álagið jókst verulega um kl. 07:00 í morgun og fram til kl. 18:00 þá komu rúmlega 70 beiðnir um aðstoð, var það ýmist vegna  bifreiða sem voru fastar og þá var mikið um að fólk kæmist ekki til og frá vinnu vegna  veðurs og ófærðar.

Lögreglan og Bj.sv. Súlur aðstoðuðu talsverðan fjölda starfsmanna Sjúkrahúss Akureyrar , Dvalarheimilisins Hlíðar og Kjarnalundar sem og nokkurra sambýla við að komast  til og frá vinnu en almennar samgöngur lágu niðri í dag.

Þá kom til tveggja sjúkraflutninga  hér innanbæjar þar sem sjúkraflutningsmenn þurftu aðstoð frá björgunarsveitarmönnum til að sinna sínum störfum en mikil ófærð var í þeim götum sem fara þurfti í.

Í lokin vill lögreglan árétta að fólk kanni ítarlega um veður og færð  áður en það leggur af stað að heiman frá sér en nú hafa flestar af  aðal  götum Akureyrar verið mokaðar en húsagötur eru vart færar nema fyrir jeppa og jepplinga en lítið þarf útaf af bregða til að færð spillist aftur.  Þá má geta þess að allar leiðir út frá Akureyri eru  þungfærar eða ófærar.