12 Ágúst 2009 12:00

Lögreglan á Akureyri rannsakar mál þar sem manni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Þrír aðilar eru í haldi lögreglu vegna málsins og hafa þeir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Málið er á frumstigi og mun lögreglan ekki gefa frekari upplýsingar um það að svo stöddu.