2 Október 2014 12:00

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru ofbeldisbrot á fyrstu níu mánuðum ársins samtals 72. Á sama tíma árið 2013 voru þau 100 talsins. Líkamsárásum (217 gr.) fækkaði milli ára úr 73 málum í 57. Málum er flokkast undir meiri háttar líkamsárás (218.1 gr.) fækkaði úr fimmtán í fjögur og stórfelldum líkamsárásum (218.2 gr.) fækkaði úr tólf í tíu. Eitt af áhersluverkefnum lögreglunnar á Suðurnesjum í Ársáætlun 2014 er fækkun ofbeldisbrota m.a. með öflugu eftirliti, sýnileika og forvarnarstarfi.